March 17
SLÁTUR í HljóðheimumListsýningin Hljóðheimar stendur nú yfir í Listasafni Íslands. SLÁTUR tekur þátt í sýningunni með syrpu stuttra fyrirlestra á laugardaginn 16. apríl kl 13:00 og svo tónleikum klukkan 15:00, sama dag.
Dagskrá sýningarinnar er hægt að finna hér: http://www.listasafn.is/
Aðgangseyrir á listasafnið er 500 kr.
Fyrirlestrar 16.apríl kl 13:00-14:30
- Þráinn Hjálmarsson – Umfjöllun um hvernig tónsmíðaaðferðin getur verið afleiða nótnaskriftarinnar. Í því samhengi verður fjallað lauslega um verkin KOSKO [2009] og Sculpture #3 [2011].
- Magnús Jensson – Náttúrutónar
- Jesper Pedersen – “*Reaction time is a factor in this so please pay attention. Answer as quickly as you can*”. A sightseeing tour through different notation systems for conveying musical information in realtime.
- Guðmundur Steinn Gunnarsson – Hreyfinótur-frá klisju til erkitýpu: Frá Jung til Marshall McLuhan eða „Hlutverk endurtekningar og staðla í gerð nótnamyndar.“
- Áki Ásgeirsson – Um verkið 295° frá janúar 2011. Tæknileg útfærsla og hugmyndir.
Tónleikar 16.apríl kl 15:00-15:45
- Þráinn Hjálmarsson – Koskó
- Páll Ivan Pálsson – Fretfet
- Jesper Pedersen – Amsterdam
- Hallvarður Ásgeirsson – Miniature#6 – Frost
- Guðmundur Steinn Gunnarsson – Kvartett nr. 8
- Áki Ásgeirsson – 295°
Myndir sem tengjast efni fyrirlestranna:
November 27
DÚNDUR & GRAPEVINE GRASSROOTS #10Í kvöld, föstudaginn 27. nóvember, verður haldið Sláturdúndur á Kaffi Kúltúr eða Cultura í kjallaranum klukkan 20:00. Sökum Sláturtíðar var ekki sláturdúndur í október en þann 1.nóvember var haldið sláturdúndur í Amsterdam í Hollandi í staðinn.
Sláturdúndur að þessu sinni verður með svipuðu móti og oft áður. Leikin verða verk á mismunandi tilverustigum, frumflutningar, forflutningar og útflutningar.
SVO
upp úr kl 21:00 troða Páll Ivan Pálsson og Guðmundur Steinn Gunnarsson upp á tíunda Grapevine Grassroots kvöldinu sem haldið er á Hemma & Valda á laugavegi. Þar koma einnig fram ÖZZ frá Noregi og stórsveitin Múkkaló.
Hlökkum til að sjá sem flesta á báðum stöðum!
November 21
Þúsund ár dagur ei meirÁki Ásgeirsson mun leika á trompet í listsýningu Ryan Parteka í D sal Hafnarhússins, sunnudaginn 22. nóvember klukkan 3:30 ásamt gítarleikaranum Flosa.
Each Thousand Years, But a Day (for Casper David Friedrich), 2009
Acrylic tanks, pumps, pipes, refrigerator, custom micro-controllers, custom electronics, lamb’s blood, 5600k light, tinted epoxy, steel, performance, 2 channel DVD of performance, Dolby 5.1 sound
October 18
Aðalfundur S.L.Á.T.U.R.Sunnudaginn 18. október var haldinn aðalfundur félagsins. Nýja stjórn félagsins skipa:
- Áki Ásgeirsson – Formaður
- Guðmundur Steinn Gunnarsson – Gjaldkeri
- Páll Ivan Pálsson – Hægri Hönd
- Ingi Garðar Erlendsson – Ritari
- Davíð Brynjar Franzson – Vefjari
- Þráinn Hjálmarsson – Varamaður Ritara
Á fundinum var samþykkt að veita eftirtöldum einstaklingum heiðursaðild og atkvæðarétt á aðalfundi félagsins byggt á umsóknum þeirra:
- Hlynur Aðils Vilmarsson
- Þorkell Atlason
- Hafdís Bjarnadóttir
- Charles Ross
- Kristín Þóra Haraldsdóttir
- Gunnar Karel Másson
- Magnús Jensson
Fyrir voru stjórn S.L.Á.T.U.R. og Jesper Pedersen heiðursfélagar samtakanna.
October 6
Nýjar íþróttagreinarEftirfarandi íþróttagreinar verða fluttar á íþróttakeppni SLÁTUR sem fer fram þann 17. okt næstkomandi, klukkan 3 í hljómskálagarðinum. Þeir sem vilja taka þátt í að flytja íþróttirnar (og þ.a.l. eiga möguleika á að setja ný heimsmet í þessum greinum!) eru hvattir til að senda póst til Áka á netfangið a k i @ s l a t u r . i s
Submitted sports for the SLATUR new sport competition. The sports will be performed on the 17th of October. Interested performers please contact Aki by email a k i @ s l a t u r . i s
Páll Ivan Pálsson – Hráki
- Tvö eða fleiri lið/einstaklingar (eftir aðstæðum) (Náttlega meira gaman að fáum stórum liðum)
- Tvö (eða fleiri) gegnsæ ílát (öll alveg eins)
- Hvert lið hefur 2 mínútur til að reyna að hrækja eins miklu slefi etc ofan í ílátin og það getur.
- Það lið vinnur sem hefur hrækt mestu.
- Dómari ræsir og stöðvar liðin auk þess að mæla magnið í lokin og úrskurða sigurvegara.
Ingi Garðar Erlendsson – Hringstökk án atrennu
- Stökkið fer fram inn í hring (t.d. húllahopp-hring).
- Inn í hringnum þarf að vera lína þvert í gegnum hringinn sem markar upphafspunkt stökksins.
- Stökkvarinn skal standa klofvega yfir línunni og stökkva í eins marga hringi og hann getur.
- Lendingin þarf að vera innan hringsins og stökkvari þarf að staðnæmast á sínum lendingarstað.
- Ef keppandi lendir utan hringsins, dettur úr lendingarstað eða styður hendur við jörð, er stökkið ógilt.
- Stökkvari ræður hvort stökkið sé framkvæmt til hægri eða vinstri.
- Mælt er stökkið í gráðum (Heill hringur er 360°).
- Ef stökkið er framkvæmt til vinstri skal leggja stiku samsíða lendingarstað innanverðs hægri fótar og stökkið mælt.
- Ef stökkið er framkvæmt til hægri skal leggja stiku samsíða lendingarstað innanverðs vinstri fótar og stökkið mælt.
- Hver keppandi fær fyrst 3 tilraunir. Þeir sem ná að stökkva lengra en 360° fá 3 auka stökk.
Guðmundur Steinn Gunnarsson – Hringbolti
- Í hringbolta er stólpi með hringlaga fati ofan á (t.d. fyrir pizzur) haft inn í miðjum hring. Eftir ákveðinn radíus er svo dreginn fullkominn hringur með snæri. Flytjendur meiga aldrei fara inn fyrir hringinn.
- Í hringbolta eru þrjú lið með 2-3 keppendur í hverju liði. Einnig þarf dómara. Notaðir eru aðalbolti og aukaboltar. Markmiðið er að fá aðalboltann til þess að staðnæmast á stólpanum í miðju hringsins en það mun vera frekar erfitt. Þegar hann nær að festast þar ofan á fær liðið sem henti boltanum síðast stig. Sé stóri boltinn ofan á stólpanum eða innan í hringnum má ekki sækja hann heldur þarf að nota aukabolta til þess að henda í aðalboltann svo hann komist út úr hringnum. Séu allir boltar fastir innan hrings fær liðið sem henti síðasta boltanum sem festist í hringnum mínus stig og allir boltar eru settir á byrjunarreit utan hringsins. Boltana meiga menn rífa hver af öðrum og það þarf ekki að dripla þeim, það má hlaupa með þá. Aðalstrategía leiksins er að liðsmenn sama liðs standi sitt hvoru megin við hringinn því þegar einn kastar aukabolta er hinn í bestri stöðu til að ná aðalboltanum. Líklegt er að fleiri mínus stig en plús stig séu gefin í hverjum leik. Dómari sér um að endurgefa boltana og fylgjast vel með hver kastaði hvaða bolta síðast. Ef aðalboltinn staðnæmist á stöplinum er mjög mikilvægt að allir leikmenn og dómari hrópi Hringbolti!
Jesper Pedersen – Face the Enemy
- Two people compete against eachother (can be multiple groups of two)
- One judge for each group.
- The two contestants face each other, grabbing each others shoulders and assume a wrestling position with slightly bent knees.
- On the judge’s mark the two contestants are to flex all the muscles in their body and smile as big and wide as absolutely possible.
- The first to lose the smile or flex – loses.
Hlynur Aðils Vilmarsson – Grast
Nafn á Íþrótt: Grast
Tegund: Einstaklingsíþrótt.
Tilgangur: Kasta bolta eins langt og mögulegt er og grípa hann aftur.
Mannfólk: Keppandi, dómari og mælari.
Hlutir: Brennibolti, mælitæki til að mæla lengd kasts.
Rými: Langur grasvöllur.
Reglur:
a) keppandi má taka tilhlaup í kasti. allar kastaðferðir eru leyfilegar.
b) kastið verður að koma fyrir framan ákveðna línu.
c) engir aukahlutir eru leyfilegir.
d) Keppandi má henda sér og skutlast eftir boltanum til að grípa boltan.
e) Kastið er ógilt ef keppandi nær ekki að grípa boltann eða grípur og missir svo.
f) Kastið er ógilt ef boltinn snertir gras.
g) Lengd kasts ákvarðast af staðsetningu fyrstu snertingu keppanda við gras eftir að boltinn hefur verið gripinn.
h) Hægt er að mæla hvert kast, eða merkja við þegar kastað er lengra og mæla svo lengsta kastið (fyrir skrásetningu á íslandsmeti).
i) Dómari notar grænan og rauðan fána til að sýna hvort kast og grip hafi verið gilt eða ógilt.
j) Dómari þarf að vera með hatt.
k) Dómari og mælari ákvarða hver staðsetning keppanda var við lendingu. Leyfilegt er að hafa aðstoðardómara sem þriðja aðila við mat.
l) Hver keppandi fær 3 tilraunir, 5 ef þáttaka er dræm eða mikil stemning.
Ástríður Halldórsdóttir – Minimaraþon
- Keppendur hlaupa 10 hringi í kringum hring sem hefur þvermálið 1m.
- Keppendur þurfa að vera tveir eða fleiri. Sá sem er fyrstur að hlaupa 10 hringi vinnur minimaraþonið.
Magnús Jensson – 16 Þraut
keppendur gefa upp 16 þrautir sem þurfa ekkert nema gras. aðrir keppendur giska í hvaða röð hinir þátttakendurnir taka sínar þrautir. hver þraut hefst á þögulli stund, sem tilvalið er að nota til flutnings á fornum kveðskap. ekkert má gefa í skyn hvaða þraut er um það bil að bresta á fyrr en íþróttin rýfur kyrrðina. sá vinnur sem giskar sem næst röð hinna þátttakenda. gisk eru leyndó þangað til lögsögumaður tilkynnir úrslit.
viðbót við íþrótt: (16/18 konseptið og bara nánari lýsing)
1) Keppandi gefur upp 18 íþróttir en ekki í hvaða röð hann ætlar að flytja þær.
2) Keppendur fá uppgefnar 18 íþróttir hvors annar og raða 16 þeirra í röð.
3) Keppendur flytja íþróttir sínar til skiptis
-hver íþrótt hefst á kyrrðarstund og má ekkert gefa til kynna hvaða íþrótt er að fara að eiga sér stað.
-áhorfendur fylgjast með íþróttaandanum safnas fyrir í keppendanum og hann má efla andann með kveðskap eða einhverju skemmtilegu.
-spennan magnast og brýst út í íþrótt sem er greinilega eftir einni lýsingunni af 18.
4) Aðeins eru fluttar 16 af 18 (því annars væri engin spenna í lokinn).
5) 5 Stig fást fyrir hverja íþrótt á réttum stað, 3 fyrir hvora rétta sem hver sleppir og 2 fyrir hverjar sem eru fluttar í sömu röð.
6) Lögsögumaður býr formlega yfir upplýsingum um ágiskanir allra keppenda. Að keppni lokinni lýsir hann sigurvegara.
Þorkell Atlason – Knattleikur með bundið fyrir augu og eyrnatappa
- Leikið er í 2×2 mínútur á afmörkuðum velli.
- Það lið vinnur sem er enn inni á vellinum eftir leikinn.
- Jafntefli ef bæði lið eru fyrir utan eða innan.
- Leikmenn 5×5 minnst.
Tom Russotti – Opener
Equipment:
- One plush soccer ball or playground ball
- One bicycle helmet with a hula hoop duct-taped to the top of the helmet per player
Field:
The field is rectangular and divided into five zones. The middle zone is a neutral zone. Each of the two separate sets of zones are points zones for each team. The end zones are two point zones and the other zones that are adjascent to the middle zone are one point zones
Play:
- Players try to score points by throwing the ball into the hoop of a teammate in a point zone, ie one point or two point zone.
- Players move the ball by taking four steps with the ball or by passing the ball forward to another teammate. The player must take four steps consecutively and may not stop between steps. After four steps a player must pass the ball. In point scoring zones, a player may not stop with the ball- after receiving the ball he or she must immediately move, and after four steps must immediately pass the ball.
- In the neutral zone and the players defense zones he or she may hold the ball before or after taking four steps.
- Defensive players may not touch offensive players and may only try to block the movement of the ball.
- A foul results in a free pass from the point of infraction.
- There are no penalties.
September 12
Keppnin um Keppinn 2009Á tónlistarhátíðinni Sláturtíð sem haldin verður 15-17 október næstkomandi fer fram KEPPNIN UM KEPPINN. Keppurinn sem um ræðir er farandbikar SLÁTUR samtakanna og var steyptur af Jóni Kristjánssyni hjá Járnsteypu Héðins í gegnheilt járn eftir kepp sem soðinn var af Elínu Sigríði Konráðsdóttur og Önnu Kristínu Gunnarsdóttur. Keppurinn var veittur fyrst árið 2008, þá til Áka Ásgeirssonar fyrir fyrstu verðlaun í marsakeppni SLÁTUR.
Næsta keppskeppni verður ÍÞRÓTTAKEPPNI. Allir geta tekið þátt og felst keppnin í að búa til nýja íþrótt. Íþróttahöfundar mega senda inn hámark eina ýtarlega lýsingu á nýrri íþróttagrein og keppnishaldarar leggja til hóp fjölhæfra íþróttaflytjenda að hámarki tuttugu og einum. Einstaklingsíþróttir eru að sjálfsögðu leyfilegar. Hugsanlegan aukabúnað og tæki þurfa höfundar að koma með sjálfir. Skilafrestur að senda inn lýsingu á íþróttagreinum rennur út þann 5. október kl. 16:00. Þá mun fara fram forval og verður tilkynnt hvort íþróttin verði flutt á Sláturtíð eða ekki fyrir 9. október.
Nánari upplýsingar veitir stjórn SLÁTUR með tölvupósti: s l a t u r @ s l a t u r . i s
SLÁTUR óskar einnig eftir íþróttaflytjendum til að taka þátt í keppninni. Flytjendur þurfa að vera vel með farnir, með góða stemmingu og fljótir að læra nýjar íþróttir.
—————————
SLÁTUR Competition for the creation of new sports!
For information, please send mail to s l a t u r @ s l a t u r . i s
Deadline: 2nd of october.
August 26
S.L.Á.T.U.R Tónleikar í Norræna HúsinuLaugardaginn 5. september lýkur S.L.Á.T.U.R (Samtök listrænt ágengra tónsmiða umhverfis Reykjavík) tónleikaferð sinni um Norðurlöndin með tónleikum hér á landi í Norræna húsinu í Reykjavík, tónleikarnir hefjast kl.20:30.
Flutt verða 8 verk eftir jafnmörg tónskáld, flytjendur verkanna eru nokkrir
meðlimir samtakanna auk slagverksleikarans Frank Aarnink. Verkin á
tónleikunum voru sérstaklega samin fyrir þessa ferð samtakanna sem hófst í
lok júlí, haldnir hafa verið 5 tónleikar í Noregi, Danmörku og Svíþjóð, og
eru tónleikarnir í Norræna húsinu lokahnykkurinn á ferðalaginu.
Flutt verða verk eftir Áka Ásgeirsson, Davíð Brynjar Franzson, Guðmund Stein
Gunnarsson, Hlyn A. Vilmarsson, Inga Garðar Erlendsson, Jesper Pedersen, Pál
Ivan Pálsson og Þráin Hjálmarsson.
AÐGANGUR ÓKEYPIS!
S.L.Á.T.U.R Concert at the Nordic House
The Last concert in S.L.Á.T.U.R-Nordic-Tour will take place in the Nordic
House in Reykjavík, Saturday 5th of september at 20:30 pm.
8 pieces have been composed especially for this S.L.Á.T.U.R Nordic tour and
will be performed by some members of S.L.Á.T.U.R and the percussionist Frank
Aarnink.
The Tour has included performances in Norway, Finland and Danmark.
FREE ENTRANCE!
August 17
S.L.Á.T.U.R. Nordic Trip 2009Nú er SLÁTUR í Skandinavíu. Föstudaginn 21. verða tónleikar undir merkjum Norrænna Músíkdaga, á mánudaginn verða tónleikar í Álaborg í samstarfi við Ny Musik, á þriðjudag í Kaupmannahöfn þökk sé Dygong, á miðvikudag í Malmö með CY og einhverntíma helgina 5-6 september verða verk ferðarinnar leikin í nágrenni við Reykjavík.
Dagskrá Norrænna Músíkdaga má sjá hér: http://www.happynordicmusicdays.no
August 17
SLÁTUR Nordic Trip 2009Written by Áki Ásgeirsson
mánudagur, 17 ágúst 2009
Nú er SLÁTUR í Skandinavíu. Föstudaginn 21. verða tónleikar undir merkjum Norrænna Músíkdaga, á mánudaginn verða tónleikar í Álaborg í samstarfi við Ny Musik, á þriðjudag í Kaupmannahöfn þökk sé Dygong, á miðvikudag í Malmö með CY og einhverntíma helgina 5-6 september verða verk ferðarinnar leikin í nágrenni við Reykjavík.
Dagskrá Norrænna Músíkdaga má sjá hér: http://www.happynordicmusicdays.no
July 28
SLÁTUR DÚNDUR / HlustunarpartýFöstudagskvöldið 31. júlí efnir S.L.Á.T.U.R til hlustunarpartýs vegna væntanlegrar plötu samtakanna. Hlustunarpartýið verður haldið á skemmtistaðnum *KARAMBA*, Laugavegi 22, kl. 20:00.
Platan verður þar spiluð í gegn og auk þess verða óvæntir atburðir að hætti dúndur-kvölda samtakanna.
Höfundar verkanna á plötunni eru:
* Páll Ivan Pálsson
* Ingi Garðar Erlendsson
* Jesper Pedersen
* Guðmundur Steinn Gunnarsson
* Áki Ásgeirsson
* Davíð Brynjar Franzson
* Þráinn Hjálmarsson
* Hlynur A. Vilmarsson
PLATAN ER VÆNTANLEG Í ÁGÚST-MÁNUÐI OG MUN FÁST Í ÖLLUM BETRI HLJÓMPLÖTUVERSLUNUM LANDSINS.