February 25
Hafiði heyrt eitthvað skemmtilegt nýlega?Hafiði heyrt eitthvað skemmtilegt nýlega?
Loading… |
Subscribe via email |
Move topic |
Pin topic |
Unpin topic |
Lock topic |
Unlock topic |
Delete this topic |
Delete this topic |
Embed post |
Permalink |
Hafiði heyrt eitthvað skemmtilegt nýlega?
Á léttari nótum.
Hafiði heyrt skemmtilega diska/plötur/mp3 nýlega? eða jafnvel heyrt sniðugt á netinu sem þið getið vísað á (t.d. tónlist á heimasíðu tónskálds, myspace eða youtube, en plís ekki fyndið á netinu og flautubeatbox). Eða hafiði tékkað á eitthverju sem var bara leiðinlegt eftir allt saman. Nýlega fór ég í gegnum nokkrar hljóðskrár sem ég fékk ólöglega af internetinu af nýrri fínni nútímatónlist frá þýskumælandi héruðum (s.s. Þýskalandi og Austurríki). *Mathias Spahlinger- Furioso og fleira *musik protocol Graz 2008, Bernhard Lang, Beat Furrer og Bruno Mantovani Hér eru verk fyrir hljómsveit +, eftir Bernhard Lang, Beat Furrer og Bruno Mantovani. Lang verkið er svona konsert fyrir rafmagns síþer, mjög spes. Dáldið ljótt pikköppasánd á því stundum, en verk sem mér finnst stundum sniðugt og stundum ekki. Beat Furrer er með svona píanókonsert með Nicolas Hodges. Ég er ekkert æðislega hrifinn af þessu, mér finnst þetta vera gestúrurugl. Svo er verk eftir Bruno Mantovani sem heitir time strech (on Gesualdo) og er held ég bara það. Hljómar ágætlega en er náttúrulega svona síðnúhyggju kjaftæði sem ég á persónulega mjög erfitt með og er í raun alls ekki hlynntur. *Wolfram Schurig- Ultima Thule, ofl. Rennur merkilega saman við diskinn á undan. Ég er í raun ekkert svo hrifinn af þessu. Gestúrur og narratíf, drama, voða fínt skrifað fyrir fín hljóðfæri en ekkert meira en það, fyrir mér persónulega. Svo gat ég ekki opnað zippið af Johann Maria Staud, en það var svona í sömu seríu af tékki hjá mér. Þetta var það fyrsta sem ég heyrði eftir öll þessi tónskáld fyrir utan eitt sem ég hef heyrt eftir Furrer og eitthvað eftir Lang. |
Re: Hafiði heyrt eitthvað skemmtilegt nýlega?
Re: Hafiði heyrt eitthvað skemmtilegt nýlega?
10 posts
|
In reply to this post by Guðmundur Steinn Gunnarsson
Hér er listi af tónskáldum sem komust áfram í Gaudeamus ef einhver hefur áhuga á að tjekka á þeim.
Er ekki búin að tjekka á þessu öllu, sumt er voða keppnis… The nominated compositions for the Gaudeamus Prize 2009 are: Symphony Orchestra Chamber Music Electronic music |
Re: Hafiði heyrt eitthvað skemmtilegt nýlega?
Það er enginn þarna sem ég þekki. Sendi einhver inn? Ég gerði það ekki. Er svona á báðum áttum með svona lagað. Á ólögleg eintök af upptökum frá því í fyrra eða hitt í fyrra. Sumt fínt annað ekki eins og gengur og gerist.
Ég skoðaði umsóknardæmið í ár og það sem fékk mig endilega til að hætta við var: |
Re: Hafiði heyrt eitthvað skemmtilegt nýlega?
Ég hef oft farið mikinn í að tala um fyrirlitningu mína á kvikmyndalist. Á dögunum fann ég mikinn samhljóm í gamalli grein eftir ofurbloggarann og Georg Bjanrfreðarson síns tíma, jú Arnold Schönberg. Hann varð fyrir vonbrigðum yfir því að ekki hefðu verið gerðar stórfenglegar kvikmynda útgáfur af t.d. Wagneróperum. Óperan fer oft ekki vel á skjá nema kannski hún sé gerð sérstaklega fyrir hann eins og hjá Ashley (og jafnvel ekki en segja sumir, no) en óperur síðustu hálfrar aldar eru eiginlega alltaf vandræðalegar sama hver á í hlut.
En um daginn sá ég bæði bíómynd sem ég fílaði (sem er sjaldgæft) og hún var líka ópera, sem ég fílaði. Það var myndin Johanna, sem er Ungversk tilraunamynd og ópera. Ógeðsleg, en ekki á hátt sem snertir mann á óþarflega tilfinningaklámslegan hátt (sem er sjaldgæft fyrir hið prímatlega from kvikmynd). Myndin er með lélegum söguþræði og pælingum, ódýrum trikkum, lélegri tónlist, sem er illa sungin með vondum midi-hljóðum en þetta smellur allt einhvern veginn ótrúlega saman í ákaflega sérstaka heild. |
Re: Hafiði heyrt eitthvað skemmtilegt nýlega?
http://www.paristransatlantic.com/magazine/interviews/malfatti.html
Hér er skemmtilegt viðtal sem ég rakst á við hinn sérlundaða Radu Malfatti. Hann er spinnari og tónskáld og hefur komið víða við. Talandi um reduksjónisma, spahlinger, gamaldagsleika Lachenmann og alls kyns yfirlýsingar, hvort hann sé faðir “Berlínarskólans” (les: redúxjónismans). |
Re: Hafiði heyrt eitthvað skemmtilegt nýlega?
Hér eru nokkur vídeó
Verk eftir Grzegorz Marciniak Verk eftir Sander Breure Verk eftir Peter Ablinger |
Re: Hafiði heyrt eitthvað skemmtilegt nýlega?
eitt sem var deilt um í darmstadtinu:
|
Re: Hafiði heyrt eitthvað skemmtilegt nýlega?
Hér er bloggsíða sem að inniheldur mikið af góðri tónlist, http://www.differentwaters.blogspot.com/
|
Re: Hafiði heyrt eitthvað skemmtilegt nýlega?
gott þetta. Gott að fá allar svona upplýsingar á þennan þráð eins og líka þetta:
eins og bara þetta http://www.avantgardeproject.org/ maður veit aldrei hver veit hvað. |
Free Embeddable Forum powered by Nabble |
February 22
Dúndur á Kaffi Hljómalind – 27.02.2009l
Written by Þráinn Hjálmarsson
sunnudagur, 22 febrúar 2009
Hrá sláturverk. Ósoðin, lauflétt og níðþung músík.
Næstkomandi föstudagskvöld 27.febrúar 2009 halda S.L.Á.T.U.R.-samtökin tónleika á Kaffihúsinu Hljómalind kl.20.00. Þessir tónleikar eru númer tvö í röð viðburða undir heitinu sláturdúndur. Sláturdúndrin eru haldin mánaðarlega, seinasta föstudag í hverjum mánuði. Hægt verður að fylgjast með tónleikunum í gegnum heimasíðu slátur – www.slatur.is – undir tenglinum „TV“ þar sem tónleikunum er sjónvarpað um alnetið
Á sláturdúndri eru einungis frumflutt ný listrænt ágeng tónverk. Listrænt ágeng tónskáld umhverfis Reykjavík koma því saman ásamt listrænt ágengum hljóðfæraleikurum sem í sumum tilfellum eru tónskáldin sjálf. Í þessari mánaðarlegu seríu er ekki gert út á umgjörð og formlegheit heldur listrænt ágengi í sinni hreinustu mynd.
S.L.Á.T.U.R. eru Samtök listrænt ágengra tónsmiða umhverfis Reykjavík. Markmið samtakanna er að stuðla að listrænu ágengi umhverfis Reykjavík og víðar. Samtökin standa reglulega fyrir ýmsum viðburðum svo sem sumarsólstöðutónleikum, nýjárstónleikum, keppninni um keppinn, utanlandsferðum sem kynna listrænt ágengi og nú sláturdúndur. Einnig er að styttast í útgáfu af kynningargeisladisk samtakanna. Þá munu samtökin halda tónlistarhátíð síðsumars.
February 17
SaumaklubburSaumaklubbur
Loading… |
Subscribe via email |
Move topic |
Pin topic |
Unpin topic |
Lock topic |
Unlock topic |
Delete this topic |
Delete this topic |
Embed post |
Permalink |
Saumaklubbur
1 post
|
Hér væri gaman að safna efni sem viðkemur verkefnum saumaklúbbs Sláturs.
|
Re: Saumaklubbur
10 posts
|
Hvernig væri að senda út saumaklúbbinn á slátur TV? Það væri gaman.
|
Re: Saumaklubbur
1 post
|
veit ekki hversu GAMAN það yrði sem áhugavert sjónvarpsefni en jú við getum prufað (netið á njáls ennþá soldið lélegt). kl átta í kvöld?
|
Re: Saumaklubbur
Á saumaklúbbi í gær voru eftirtaldar kynningar.
Áki kynnti sitt forritapælingar sínar upp á töflu og myndir útskýrðu mikið hvernig þetta á að virka. Hann tilkynnti að þetta væri allt komið yfir í Java, og ég get ekki skýrt í orðum fleira sem hann sagði, en þetta er allt mjög forvitnilegt. Eftir talsverða vinnu í þessu forriti getur Áki bara dúndrað út verkum fyrirhafnar laust. Forritið er eins og róbótaryksugan, gerir það sem hann nennir ekki. Svo kynnti Þráinn að hann væri að vinna í sínu pechacucha sem og útskriftarbókartexta. Ásgeir kynnti mjög svo áhugavert physical modelling dæmi sem hann er að gera (í pmpd) sem lokaverk. Get ekki lýst því betur því ég veit og skil bara brot af því og væri til í að vita miklu meira. Ég sagði að ég væri að vinna í að skilja betur osc pakkann í processing, og hvernig hægt er að fara beint úr processing í processing, tölvu í tölvu án milliliðar pd eins og ég gerði á síðasta dúndri. Jesper sagðist vera að vinna í harmóníkku og rafverkinu sínu og að breyta smá hlutum í því. Svo leystist þetta smám saman upp í vitleysu, Maggi kom seint og upphófust mjög svo áhugaverðar umræður um framtíð tónlistar, ekki á heimspekilegum nótum heldur mjög praktískum. Borin voru saman ýmis mjög leinileg plön sem meira verður fjallað um síðar. Hæglátt og fínt nördakvöld. Mjög nördalegt og fínt, ekkert of mikið partýstuð. Eitt sinn nörd, ávallt nörd. |
Re: Saumaklubbur
10 posts
|
Takk fyrir að segja frá.
Ég eiginlega öfunda ykkur þarna uppfrá. Reyndar er vikulegt nördakvöld hér í Haag en þau eru bara svo rosalega mismunandi. Annars er ég að skrifa Twist þessa stundina. Mjög gaman. Ingi Garðar |
Free Embeddable Forum powered by Nabble |
February 16
Bókaskrá bókasafns SLÁTURBókaskrá bókasafns SLÁTUR
Loading… |
Subscribe via email |
Move topic |
Pin topic |
Unpin topic |
Lock topic |
Unlock topic |
Delete this topic |
Delete this topic |
Embed post |
Permalink |
Bókaskrá bókasafns SLÁTUR
21 posts
|
Hér verður birtur listi af þeim bókum sem skráðar hafa verið í bókasafn SLÁTUR.
Við munum reyna að uppfæra hann jafnóðum og bækurnar bætast í safnið. |
Bókaskrá bókasafns SLÁTUR og ný aðföng
21 posts
|
Bækur:
Brilliant Photoshop CS The Cambridge companion to John Cage Descartes’ Error: Emotion, Reason and the Human Brain Eðlisfræði 1 Efnafræði I Efnafræði II ELFA Catalogue 57, 2009 Experimental music Fylki og Jöfnuhneppi Getting started in Electronics Learning Python, 3rd Edition Les Sculptures Sonores: the Sound Sculptures of Bernard and Francois Baschet Madness and civilization Noise The Power of Limits: Proportional Harmonies in Nature, Art, and Architecture (Shambhala Pocket Classics) Rásakverið Segulfræði Stability in Musical Improvisation Stockhausen Life and Works Structural Functions of Harmony The structure of atonal music Style and idea Tom Friedman (Contemporary Artists) Two full ears: Listening to improvised music Two interviews Luciano Berio Writings through John Cage’s music, poetry, and art Nótur: adieu nr. 21 HOCH-ZEITEN für Orchester Madame Press Died Last Week at Ninety Madrigal 3 MANTRA Palais de Mari Summer; string quartet Symphonie op. 21 Tempi concertati DVD: John Cage From Zero John Cage One” and 103 |
Re: Bókaskrá bókasafns SLÁTUR og ný aðföng
Væri ekki ráðlegt að setja upp section fyrir þetta þannig að það sé ekki endalausir póstar heldur bara ein síða með öllum upplýsingum. Kíkji kannski á það seinnipartinn.
|
Re: Bókaskrá bókasafns SLÁTUR og ný aðföng
21 posts
|
Fram að endurbótum mun listinn birtast hér.
adieu nr. 21 Audible Design The Book of Linux Music and Sound Brilliant Photoshop CS The Cambridge companion to John Cage Descartes’ Error: Emotion, Reason and the Human Brain Eðlisfræði 1 Efnafræði I Efnafræði II Electronic and Computer Music (Clarendon Paperbacks) ELFA Catalogue 57, 2009 Experimental music Formalized Music: Thought and Mathematics in Composition (Harmonologia Series, No 6) Föroysk Bindingarmynstur Fundamentals of Musical Composition Fylki og Jöfnuhneppi Getting started in Electronics Give My Regards to Eighth Street: Collected Writings of Morton Feldman Het Knopen Handboek Hljóðfræði HOCH-ZEITEN für Orchester Hungarian folk dances Improvisation: Its Nature And Practice In Music John Cage From Zero John Cage One” and 103 Learning Python, 3rd Edition Les Sculptures Sonores: the Sound Sculptures of Bernard and Francois Baschet Madame Press Died Last Week at Ninety Madness and civilization Madrigal 3 MANTRA Noise On Sonic Art (Inc. CD) On the Sensations of Tone Palais de Mari The Power of Limits: Proportional Harmonies in Nature, Art, and Architecture (Shambhala Pocket Classics) Rásakverið Running Linux Sams Teach Yourself C++ in 21 Days (4th Edition) (Sams Teach Yourself…in 21 Days) Segulfræði Stability in Musical Improvisation Stockhausen Life and Works Streymið / La Duré Structural Functions of Harmony The structure of atonal music Style and idea Summer; string quartet Symphonie op. 21 Technique of Orchestration, The Tempi concertati Tölvur að starfi Tom Friedman (Contemporary Artists) Tónlistarorðabók Twentieth Century Harmony Two full ears: Listening to improvised music Two interviews Luciano Berio UNM 2007 á íslandi – Bæklingur Prógramm |
Re: Bókaskrá bókasafns SLÁTUR og ný aðföng
21 posts
|
In reply to this post by David Brynjar Franzson
bókaskráin er komin í aðalvalmynd (flipinn “bókasafn” vinstra megin á síðunni.)
|
Free Embeddable Forum powered by Nabble |
February 15
Netbækur fyrir sláturbókasafnNetbækur fyrir sláturbókasafn
Loading… |
Subscribe via email |
Move topic |
Pin topic |
Unpin topic |
Lock topic |
Unlock topic |
Delete this topic |
Delete this topic |
Embed post |
Permalink |
Netbækur fyrir sláturbókasafn
Í sambandi við byggingu sláturbókasafnsins höfum við mikið verið að ræða að prenta út alls kyns gögn sem menn eiga á pdf á tölvunni sinni eða liggja einhvers staðar á netinu ókeypis og prenta þau út í fast form því þetta les enginn eða skoðar af ráði af tölvuskjá. Ég ætla að nefna nokkrar bækur (meiga líka vera greinar, eða skor) sem ég veit um eða hef aðgang að og vona að aðrir bæti við í sarpinn.
Technique of Electronic Music eftir Millerinn. Alltaf ætlað að prenta hana út en aldrei gert það. Flautubókin eftir Cörlu Levine sem ég fékk frá Davíð. Sound Plasma Music of the Future sign eftir Radulescu Skorið af 5.strengjakvartett radulescu Skorið af Furioso eftir Mathias Spahlinger Ýmist Tenney og Sabat dót af Plainsound Margt fleira sem ég man næst .þegar ég opna tölvuna. Hverju man lesandinn eftir? Póstaðu núna. |
Re: Netbækur fyrir sláturbókasafn
Giacinto Scelsi – fjórði strengjakvartettinn
Iannis Xenakis – Rebonds, held ég eigi líka Pshappa einhvers staðar. Grisey – Partiels (þyrfti helst að vera A3), Periodes (þyrfti líka að vera A3) Julius Eastman – Crazy Nigger Eight violins for Jim and Alison e. Tashi Wada af Plainsound Svo jafnvel einhver áhugaverð verk af síðunni unboundpress.org og líka eitthvað fleira skemmtilegt, það er til heimasíða þar sem hægt er að finna mikið af nótum og heitir hún A V A X h o m e, gúglið Ég á svo nótur í fýsísku formi sem ég væri til í að geyma í einhvern tíma á safninu einsog Mnemosyne eftir Ferneyhough, Ionisation e. Varése, Ornament fur Klavier e. Boris Blacher, Cassandra’s dream song e. Ferneyhough, L’aime l’ouverte e. Scelsi, Se dell’eterne idee e. Paolo Aralla o. fl. |
Re: Netbækur fyrir sláturbókasafn
Ég á líka Partiels í útprentuðu formi, get komið með það.
Gallinn við þetta Avax er að maður er að borga fyrir ólöglegt efni af Rapidshare, og svo líka get ég ekkert opnað skorin sem ég hef downloadað út af einhverjum fáránlegum þjöppunarformötum. Þannig að ef þú átt einhver sniðug skor af a v a x h o m e (t.d. var slatti af feldman, lachenmann og ýmislegt fleira) þá væri gaman ef þú gætir komið með, prentað eða sent óþjöppuð á mig eða einhvern til þess að prenta. Svo er ég með Notations af Ubuweb tilbúna til útprentunnar bangbook (bók af pd ráðstefnu) svo á ég skor af nokkrum scelsi verkum, ferneyhough og eitthvað fleira sem ég man ekki hvað er. |
Re: Netbækur fyrir sláturbókasafn
10 posts
|
Ég held að þú sért bara klaufi við þetta. Ég hef náð þessu öllu leikandi létt. 7z er þjöppunnar forrit sem þú þarft. Ég á orðið rúmlega 2000 verk nú, og þá er það allt eiginlega af tuttugustu öld. Hvenær ætla ég að skoða það. Hugsanlega aldrei og þó. Ef einhver er með stað á netinu þá get ég sent eitthvað af því áhugaverðasta. Bara nefna það
ingi. |
Re: Netbækur fyrir sláturbókasafn
Það er kannski spurning um að þú setir eitthvað af því áhugaverða inná gagnasafnið, það er hægt að prenta það svo út fyrir bókasafnið, þetta 7z er líka búið að vera í tómu tjóni hjá mér.
|
Re: Netbækur fyrir sláturbókasafn
Ingi!
Áttu skor af? For Samuel Beckett og/eða Coptic Light? Og áttu Kontrakadenz eftir Lachenmann? og Esplorazione del bianco og/eða Omaggio a Burri eftir Sciarrino? og áttu skor af verkum eftir Peter Ablinger? |
Re: Netbækur fyrir sláturbókasafn
10 posts
|
Held ég eigi bara Kontrakadenz. Skal Athuga betur. Hvernig er best að setja þetta inn á netið. Væri helst til í að gera það inn á læstu svæði.
|
Re: Netbækur fyrir sláturbókasafn
í sjálfu sér hefði ég mikinn áhuga á öllu sem heitir Morton Feldman og mörgu sem heitir tónskáld fædd eftir segjum 1940. En ef þú velur nokkrar góðar og setur í gagnasafn og stillir á falið efni, eða bara fyrir password aðila, þá getum við tekið þetta og prentað því það væri gaman að hafa svona fýsísk eintök í safninu.
Ég væri líka til í að hafa öðruvísi nördastund, þar sem fólk hittist í klukkutíma, eða minna og les eitt skor með upptökunni (kíkir aðeins á skordatúrinn á undan). Bara pæling, ekkert skipulagt bara stemning. |
Free Embeddable Forum powered by Nabble |
February 15
Myrkir Músíkdagar 2009, fyrsti hlutisunnudagur, 15 febrúar 2009
Ég ætla að fara stuttlega í gegnum það sem fyrir augu og eyru bar á myrkum músíkdögum. Bara stikla á stóru, ekki að fara ýtarlega í þetta allt. Það veitir ekki af því að koma einhverri umfjöllun yfir á miðil sem fólk les, eins og internetið þar sem mogginn er bara með greinar um Janis Joplin fyrir örfá bláfálka sem enn lesa prentmiðla og fréttablaðið fjallar ekki um menningu.
Á þriðjudeginum 3.febrúar var tekið forskot á Myrkrið með ömurlega leiðinlegum óperufyrirlestri Phillipe Manoury þar sem hann fjallaði um og spilaði brot úr hræðilega venjulegri og óspennandi óperu byggðri á réttarhöldunum eftir Kafka.
Svo var ekkert fyrr en á föstudaginn, raftónleikar. Þar ber helst að nefna mjög flott verk eftir Hilmar Þórða, Sononymous X þar sem Helgi Hrafn fór á kostum í gagnvirkum leik við tölvuna. Ríkharður átti ríkulega hljómandi rafspretti að vanda ekki síst í lokaverkinu sem notaði element úr verkum Páls Pálssonar eldri. Restin höfðaði ekki mikið til mín, fyrir utan eitt rafverk eftir einhvern miðaldra sunnlending sem heitir Guðmundur Óli Sigurgeirsson.
Á laugardeginum byrjuðum við Þráinn á kórtónleikum í Neskirkju. Þar stóð upp úr verk Elínar Gunnlaugsdóttur fyrir kvennraddir og háastrengi. Mjög sérstakt verk á takmörkuðu registeri. Það var eina verkið sem höfðaði til mín í raun og veru. Kórinn var mjög góður í vondu erlendu verkunum, m.a. eftir John Taverner, mikill bassi. Það voru fín verk eftir Gunnar Andreas og Harald Vigni. Örlygur var með metnaðarfullar harmóníur og Bára Gríms var líka með ágætisverk. Ég ætla að hafa sem minnst orð um verkin sem stuðuðu mig.
Þá næst fórum við á sýningu á verkum Alfreðs Flóka sem var fín en ekki síðri var Ásmundur Ásmundsson með holuna sína og vídjó af krökkum að grafa holu af miklum eldmóð. „Grafa niður, grafa niður.“
Þá var farið í Hafnarfjörð. Þar heyrðum við fyrir hlé bara fín verk eftir Önnu Þorvalds, Karólínu og Ása Más. Allt salla fínt og spilað af mikilli sannfæringu Tinnu og Franks. Það var einstaklega falleg sviðsmyndin í verki Önnu þar sem þau léku á sömu Slaghörpuna og maður sá allar aðgerðir Franks innan í píanóinu speglast kristaltært upp á píanólokið. Verk Ása Más endaði á gangandi bjöllu, bjölllu sem gekk út af sviðinu. Það rétt svo gaf tónin fyrir sviðslistahúllumhæið eftir hlé. Haldiði að það hafi ekki verið Palli og Áki með skínandi sveiflu. Þuríður Jóns og Rohloffinn með fín verk en dáðardrengir sláturs settu allt í nýtt samhengi eða voru hreinlega í röngu samhengi. Palli var með rosalega fallegt verk fyrir píanó prófara og urrara og padda. Rosalega sérstakt verk sem minnir mig óbeint á Skulu eftir mig sem Palli hefur aldrei heyrt og 328 eftir Áka. Áki teppalagði sviðið með sínu hafurtaski og sýndi að hann hefur engu gleymt. Sjálfur var hann á því að eitthvað hefði mistekist í lokin. Ég tók ekki eftir því, en hins vegar tók ég eftir honum færa míkrófón í miðju verki sem mér fannst alveg off. Balansinn var erfiður reyndar, í verkinu. En svaka bomba.
Því næst var förinni heitið í ljótasta hús sem ég hef á ævi minni séð, Guðríðarkirkju í Grafarholti. Lítur út eins og kókaín skemmtistaður í miðborg Reykjavíkur í miðri verðbréfahelförinni. En þar heyrðum við leiðinlegt sólóflautuverk eftir Manoury, sem var samt furðu þolanlegt. Ég fór að velta því fyrir mér hvort rafhljóðin væru ekkert svo hræðileg eða hvort maður verði ekki eins vandlátur á rafhljóð með aldrinum. Svo kom Hlými Atla Heimis. Sígildur slagari þar sem tónskáldið sýnir sérstöðu sína strax um leiði og hann vefur sig inn í teppi módernismans með sinni eigin rödd. Unaðslegt alveg. Þá næst var huldumaðurinn Einar Torfi með rosalega fínt verk. Talaði vel Lachenmannskt tungumál, það var helst miðjukaflinn af 9 sem var mjög persónulegur og einkennilegur, flottastur að matri margra viðstaddra. Hitt var meira svona góður djass. Flottar samsetningar hljóða en ekki mikið endilega gert við hvert hljóð en vel orkestrerað saman. Skröp strengjahljóðfærana grunar mig að hafi átt að vera grófari. Svo eftir hlé kom Manoury öllum að óvörum (mér að minnsta kosti) með þrusu stykki fyrir tvöfaldan kammerhóp (tvo stjórnendur). Svaka stuð og flottir glassúrveggir fullir af gestúrískum trillum og svoleiðis, haganlegasta smíði.
February 15
Myrkir Músíkdagar 2009, annar hluti
Written by Guðmundur Steinn Gunnarsson
sunnudagur, 15 febrúar 2009
Á sunnudegi var byrjað á flaututónleikum í Salnum. Byrjaði á stykki eftir Misti sem mér fannst bara mjög fínt. Melódískt í þjóðlagastíl og nýtti sér multiphonics í hljómrænu samhengi. Það hef ég persónulega aldrei séð áður. Bara séð verk sem eru geðveikt nákvæm með einhverjar ákveðnar multiphonics en gæti í raun alveg verið hvaða rugl sem er. Þarna hefði heyrst hefði þetta verið vitlaust multiphonic. Svo var verk eftir Snorra sem mér fannst hafa mikla undirliggjandi retórík þrátt fyrir að tónmálið gerði hana ekki greinilega. Annað var bara svona já, ja, fínt. Skyldi illa calculus 2 eftir Kjartan þar sem það fór í Chopin’ískar útlínur utan um atónal tónmál en calculus 1 var meira svona hrár algóritmískur nýmódernismi. Klaus Aager var bara plein leiðinlegur.
Ég fór ekki á söngperlutónleikana og það var fyrsta skrópið mitt. En um kvöldið fór ég á kammersveitina. Það var smá púki í mér og ég var ákveðinn í að púa ef mér fyndist eitthvað vera reglulega ömurlegt. En viti menn, svo var þetta bara fínir tónleikar. Virkilega fínir. Jónas fannst mér ekkert spes en Andrej Stochl fannst mér rosa fínn. Hrafnkell Orri fór á kostum og rosa fín strengjasúpa. Allt annars konar stíll en caput. Kannski rómantískara en rosa metnaður og dúndur í þessu. Svo var pínu vont en allt í lagi teater stykki eftir Peter Graham. Atli Ingólfs var með rosalega flott verk sem byrjaði á mekanísku bassetthorn sólói með fínlegum gustum við og við sem komu frá strengjaleikurum með hótelherbergis málmmjúta. Eftir júnisonlínu sem mér fannst soldið skrýtinn kom síðan svaka þéttur og fínn massi með restinni af strengjunum, rosa flott. Seinasta verkið eftir Pavel Zemek var vont en, Matti Nardaeu var með sóló á ensku horni mest allan tímann sem var algjör englasöngur. Svo fallegt og örðu hvoru kom Einar Jóhannesson og svona greip framm í. Þó tónmálið væri ljótt var flutningurinn alveg gríðarlegur.
sunnudagur, 15 febrúar 2009
Á mándeginum fór ég á ágæta hádegistónleika í norræna húsinu. Þar heyrði ég gegnum hurð mjög fallegar þjóðlagaútsetningar Snorra Sigfús, sem minntu á plötuna sem hann gaf út fyrir skemmstu sem mér finnst mjög fín og notar lögin einhvern veginn, ekkert að rembast við að hafa lögin „þjóðleg“ eða velja „þjóðlegustu lögin“ sem strax kemur í veg fyrir misskiling og er fyrir vikið bara mjög fallegt og smekklegt. Svo voru stutt lítil tvíhent píanóverk eftir Þuríði og svo Hauk Tómasson. Fínt bara, svo fjórhentar barrokkútsetningar eftir Kurtag, frescobaldi, bach og purcell, algjört konfekt.
Svo sleppti ég nokkrum tónleikum og mætti ekki fyrr en á miðvikudag að sjá Stelk, og bara sorrý, bestu tónleikar hátíðarinnar. Það voru allir viðstaddir á þessu. Charles Ross er best geymda leyndarmálið og allt það. Algjör snilld. Mætti bara brot af því sem hafði verið á hinum tónleikunum sem ég fór á, allt þetta fólk missti af bestu tónleikunum. Það eru svo margir atburðir sem hafa verið algjörlega undirdokjúmentaðir þar sem ég hef séð Charles fara á kostum. Segulbandagjörningurinn í Tjarnarbíói, á MM 2003 eða eitthvað álíka, og geðveikt verk á Eiðum 2007. Svo heyrði ég geðveika sembalstykkið í sumar á upptöku. Þarna voru tónleikar með fullt af nýju efni, fyrst Early Sea Painters sem byrjaði dáldið rokkað og seinni helmingurinn var algjör snilld. Svo var tekið piano phase eftir Reich í gítarútsetningu. Mjög flott þótt ég þoli Steve Reich minna og minna með hverju árinu sem líður. Svo koma bomba kvöldsins að mínu mati. The Fox. Æðislegt verk. Get ekki lýst því. Alveg ótrúlegt. Rosa flottir víóludúettar með undarlegum innskotum með annarlegum hrynhugmyndum. Kynngimagnað. Eftir hlé var fyrst dúett með þeim félögum Matta og Charles, sem ég man ekki hvað hét, skemmtilegur Kora fílingur. Svo var Matti með sóló eftir sjálfan sig sem var alveg geðsjúkt. Ótrúlega fínlegt yfirtónagítarplokksrugl. Snargeðveikt. Þá endaði það á sögustykkinu Leviaphone sem var ákaflega skemmtilega kakófónía full af annarlegum vísunum og Kínverskt lag í uppklapp.
Sinfó var bara allt í lagi þannig séð. Troðfullt hús á myrkumsinfó, aldrei séð það fyrr. Trekti bara að eins og sálin og sinfó. Haukur var fínn. Danni var fínn. Ég var ekkert eins mikið á móti þessu og ég hélt ég myndi vera. Þetta var bara stemning, dash af hollywood en samt voða fínt.
Á föstudeginum fór ég ekki á djasskjaftæðið heldur fór á geðveika fokking tónleika í Nýló með nýlókórnum. Alveg frábært. Sérstaklega Veðurspáin eftir Hörð Braga sem var fyrir kór þeremín bassa og upptökur og svo var Magnús Pálsson með geðveikt verk sem vann með element úr Hrafnkellssögu. Notaði rými og hreyfingar og fór alla leið í jákvæðri tilgerð og tilþrifum. Byrjaði á miðlungsverki eftir Phillip Corner. Ég er nú hrifinn af sumu eftir Corner en nóg um það.
February 11
Nýtt húsnæði SLÁTURWritten by Áki Ásgeirsson
miðvikudagur, 11 febrúar 2009
ImageSaumaklúbbur SLÁTUR var haldinn hátíðlegur í gærkvöldi í nýju húsnæði samtakanna í húsinu nr 14 við Njálsgötu. Stenmingin var að vonum fjölbeitt eins og meðfylgjandi mynd gefur til kynna.
February 7
Austurrískt Klám í Nýju Jórvíklaugardagur, 07 febrúar 2009
Í kvöld fór ég á tónleika með Argento samspilinu í Miller Theater í Columbia. Á efnisskrá var aðeins eitt verk, verkið “In Vain” frá árinu 2000 eftir Georg Friedrich Haas. Verkið er fyrir 24 hljóðfæri, ein klukkustund á lengd og er sérstakt fyrir þá sök að helmingur verksins er spilaður í algjöru myrkri (engin lesljós).
Auðveldast er að lýsa verkinu eins og að eilíft sé zoomað inn í efniviðinn og farið lengra og lengra inn í hann þar til aftur er komið á upphafspunkt. Efniviðurinn er einfaldur, tvær mismunandi ómtýpur eru nýttar til að flökta fram og tilbaka, önnur er bara spektrúm en hin er svona óáttundaendurtekningarhljómruna eða hvað sem svoleiðislagað heitir á íslensku. Innan þessara óma eru svo runur af nótum niður á við, stærri hreyfing upp á við og svo svona spektral tónar sem svo verða hljómar. Eins og ég sagði þá er yfirborðið tekið og farið inn í það, i.e. eitthvað er blásið upp t.d. skali niður á við þar til hann er kominn úr því að vera skreytifyrirbæri yfir í að vera tektónískt fyrirbæri. Svo lengist kannski hver nóta þar til maður fer að “heyra” fínleikann innan nótunnar og þá er maður aftur kominn í einhverja skreytifígúru sem svo er áfram zoomað inná. Þar sem ekki er ljós helmingin af stykkinu (kemur tvisvar inn og út) þá verða þeir hlutar sem eru spilaðir í myrkri að vera fremur einfaldir bæði í spilun og samhengi ef 24 manns eiga að geta samræmt sig og spilað saman. Þetta gefur verkinu mikla vídd á milli nákvæmni og smáatriða annarsvegar og svo rosalega stórra pensilsveipa hins vegar. Á þeim punktum verður korn stærðin svo stór að yfirborðið jaðrar við fauvisma.
Vanalega myndi ég vera heiftarlega skeptískur á svona hreinann spektralisma, yfirborðsprócess og gimmik (ljósin), og jafnvel þótt þetta sé hreinasta klám þá get ég ekki sagt annað en þetta var ein besta konsert upplyfun sem ég hef átt lengi. Verkið er stórgott, og utan við nokkuð ljótann (i.e. traditional) hörpupart og ofnotkun á tam tam þá get ég bara ekki fundið neitt verkinu til ama. Veit ekki hvort það myndi lifa af hlustun á disk, ljósin gera ansi mikið, og þetta er í raun sviðsverk. Er ekki viss um að það gengi upp á tónleikum með öðrum stykkjum, en eitt og sér á sviði þá er það alveg frábært.